Vetrargarðurinn

Vetrargarðurinn er afþreyingarmiðstöð Smáralindar. Hann er 9.000 fm að stærð og í honum eru veitinga- og kaffihús, kvikmynda- og ráðstefnusalir, barnaskemmtistaður og 1.750 fm sýningarsvæði sem býður upp á mikla möguleika. Lofthæð í Vetrargarðinum er allt að 13,6 metrar og þar er vítt til veggja. Vetrargarðurinn er því góð umgjörð um margvíslega atburði. Í Vetrargarðinum er bæjartorg Smáralindar og þar verður tónninn gefinn fyrir það sem er að gerast í byggingunni.

Sýningar, ráðstefnur, uppákomur

Í Vetrargarðinum gefst möguleiki á að vera með margs konar sýningahald, ráðstefnur og uppákomur. Þeir sem standa fyrir atburðum í Vetrargarðinum geta nýtt sér þjónustu þeirra aðila sem í honum eru. Veröldin okkar býður upp á barnagæslu, kvikmynda- og ráðstefnusalir Smárabíós eru mjög vel útbúnir og rúma meira en 1.000 manns í sæti og veitingastaðir og kaffihús í Vetrargarðinum bjóða upp á margvíslega þjónustu.

Einstök aðstaða til sýningahalds

Vetrargarðurinn hentar vel til sýningahalds. Auðvelt er að koma fyrir básum á torgi Vetrargarðsins og skipta svæðinu niður í litlar einingar. Lofthæð í Vetrargarðinum er allt að 13,6 metrar og í gólfi torgsins eru tengi fyrir rafmagn, síma og tölvur með mjög stuttu millibili.

Hægt er að hafa lokaðar eða opnar sýningar eftir óskum sýningahaldara. Líklegt má telja að aðsókn að opnum sýningum verði góð þar sem torg Vetrargarðsins er bæjartorg stærstu verslunarmiðstöðvar landsins.

Kaffi- og veitingahús í Smáralind geta veitt sýningahöldurum allar þær veitingar sem nauðsynlegar eru.

Tónleikar fyrir allt að 2000 áhorfendur

Í Vetrargarðinum er góð aðstaða til tónleikahalds.  Hljómgæði eru góð og á torgi Vetrargarðsins er pláss fyrir allt að 2000 áhorfendur.

Vetrargarðurinn er hentugur bæði til sjálfstæðs tónleikahalds sem og stuttra kynninga á tónleikum sem fram eiga að fara annars staðar.  Hvort sem um er að ræða klassíska tónleika, popptónleika eða söngleiki hentar Vetrargarðurinn undir viðburðinn.

Vetrargarður og fimm ráðstefnusalir

Í Vetrargarðinum er góð aðstaða til margs konar ráðstefnuhalds.  Allir fimm kvikmyndasalir Smárabíós eru útbúnir sem ráðstefnusalir.  Þeir eru búnir fullkomu hljóðkerfi og hægt er að varpa mynd úr einum sal í hina fjóra.  Samtals rúma þeir meira en 1000 manns í sæti.

Á svölum fyrir framan Smárabíó og á torgi Vetrargarðsins er hægt að hafa sýningu eða móttöku tengda ráðstefnunni.  Mögulegt er að skipta svæðinu niður og loka það af eftir óskum ráðstefnuhaldara.

Afgreiðslutímar

  • Virka daga 11 - 19
  • Fimmtudaga 11 - 21
  • Laugardaga 11 - 18
  • Sunnudagur 13 - 18

Netklúbbur Smáralindar

Skráðu þig í Netklúbbinn.
Veglegir vinningar í boði!

Smelltu hér

Nýtt í bíó

Allra nýjustu myndirnar í flottasta bíói landsins

Smelltu hér Nýtt í bíó

Smáralind á Facebook

Skráðu þig hér !

Smelltu hér Smáralind á Facebook